18.11.2020

Viðauki við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 – breytt tillaga til kynningar

  • Mynd af forsíðu tillögu

Skipulagsstofnun lagði 13. nóvember sl. fram til kynningar tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 ásamt umhverfismati.

Vakin er athygli á því að nýtt skjal hefur verið sett á vefinn með breyttri tillögu. Breytingin felst í því að efni kafla 6.3 Nýting vindorku í sátt við umhverfi og samfélag hefur að svo stöddu verið fellt brott, ásamt samsvarandi umfjöllun í umhverfismati. Það er gert vegna áforma um breytingar á lögum nr. 48/2011 um verndar- og orkunýtingaráætlun (rammaáætlun) sem eru í vinnslu í umhverfis- og auðlindaráðuneyti, sem haft geta áhrif á efni og útfærslu þessa kafla.

Skjalið með breyttri tillögu má nálgast hér. Tillagan er jafnframt aðgengileg á vef landsskipulagsstefnu, www.landsskipulag.is, og á vef Skipulagsstofnunar, www.skipulag.is.

Kynningarfundur um tillöguna verður haldinn á vefnum á morgun, fimmtudaginn 19. nóvember kl. 14-16. Fundinum verður streymt á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar og er ekki þörf á að skrá sig til að fylgjast með streyminu.

Allir sem þess óska geta gert athugasemdir við tillögu að viðauka við Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og umhverfismat hennar. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun er til og með 8. janúar 2021.

Athugasemdum skal skilað bréflega til Skipulagsstofnunar, með tölvupósti á netfangið landsskipulag@skipulag.is eða um athugasemdagátt á vef landsskipulagsstefnu, www.landsskipulag.is.