19.12.2014

Landsskipulagsstefna 2015-2026 - tillaga til kynningar

  • Graf á tölvuskjá

Skipulagsstofnun auglýsir tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 til kynningar ásamt umhverfismati í samræmi við lög nr. 123/2010 og 105/2006 og reglugerð nr. 1001/2011.

Skipulagsstofnun auglýsir tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 til kynningar ásamt umhverfismati í samræmi við lög nr. 123/2010 og 105/2006 og reglugerð nr. 1001/2011.

Í tillögunni er sett fram stefna um:

  1. Skipulag á miðhálendi Íslands

  2. Skipulag í dreifbýli

  3. Búsetumynstur og dreifingu byggðar

  4. Skipulag á haf- og strandsvæðum

     

Tillaga að Landsskipulagsstefnu 2015-2026, ásamt fylgiskjali, Skipulagsmál á Íslandi 2014 – lykilmælikvarðar og fyrirliggjandi áætlanir, er aðgengileg hér á vefnum og á vef Skipulagsstofnunar, www.skipulagsstofnun.is. Gögnin liggja jafnframt frammi til sýnis hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík. Fyrirhugaðir eru kynningarfundir vegna tillögunnar í janúar 2015 og verða þeir auglýstir síðar.

Allir sem þess óska geta gert athugasemdir við tillögu að Landsskipulagsstefnu 2015-2026 og umhverfismat hennar. Frestur til að koma skriflegum athugasemdum á framfæri við Skipulagsstofnun er til 13. febrúar 2015. Þeim skal skilað bréflega til Skipulagsstofnunar, með tölvupósti á netfangið landsskipulag@skipulagsstofnun.is eða um athugasemdagátt á vef landsskipulagsstefnu www.landsskipulag.is.

Auglýst tillaga að landsskipulagsstefnu:

Fylgiskjal auglýstrar tillögu að landsskipulagsstefnu: