Liðnir viðburðir

Kynningar- og samráðsfundur um gerð landsskipulagsstefnu - Reykjavík

Skipulag um loftslag, landslag og lýðheilsu

  • 21.3.2019

Hafin er vinna við gerð viðauka við gildandi landsskipulagsstefnu þar sem mótuð verður nánari skipulagsstefna um loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.

Lýsing þar sem gerð er grein fyrir hvernig fyrirhugað er að standa að mótun stefnunnar liggur fyrir og stendur Skipulagsstofnun nú fyrir kynningar- og samráðsfundum um landið þar sem hún verður kynnt. Allir sem áhuga hafa eru hvattir til að koma og kynna sér hvernig fyrirhugað er að standa að mótun landsskipulagsstefnu og taka þátt í umræðum um æskilegar áherslur og aðgerðir í landsskipulagsstefnu varðandi loftslagsmál, landslag og lýðheilsu.

Kynningar- og samráðsfundur verður haldinn á í Reykjavík þann 21. mars, klukkan 15.00-17.30, á Nauthól.

Dagskrá fundar:

- Lýsing landsskipulagsstefnu, kynning og umræður.

- Umræður um áherslur og aðgerðir í skipulagi um loftslag, landslag og lýðheilsu.

Fundinum verður streymt á Facebook-síðu Skipulagsstofnunar.


Húsið opnar 14.45. Heitt á könnunni.

Allir velkomnir.

 

Nánari upplýsingar um ferlið má nálgast hér .