11.10.2012

Landsskipulagsstefna 2013 – 2024 - Kynningarfundir

Skipulagsstofnun mun í október halda kynningarfundi víða um land þar sem kynnt verður tillaga að landsskipulagsstefnu 2013 – 2024 sem auglýst hefur verið samkvæmt 11. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Á kynningarfundunum munu Stefán Thors og Einar Jónsson kynna:

Markmið og áhrif landsskipulagsstefnu og staða í skipulagskerfinu

Ferli landsskipulagsstefnu og samráð

Áherslur ráðherra fyrir gerð landsskipulagsstefnu

Helstu forsendur, sviðsmyndir og afmörkun stefnumótunar

Stefna

     Skipulagsmál á miðhálendi Íslands

     Búsetumynstur og dreifing byggðar

     Skipulag á haf- og strandsvæðum

Umhverfismat landsskipulagsstefnu 2013-2024
 

Kynningarfundirnir verða á eftirfarandi stöðum:

     Borgarnes 17. október kl. 13:00 á Hótel Hamri

     Egilsstaðir 18. október kl. 13:00 á Austurbrú

     Blönduósi 24. október kl. 13:00 í Eyvindarstofu

     Ísafirði 25. október kl. 13:00 í Bryggjusal, Edinborgarhúsi

     Akureyri 26. október kl. 13:30 á Hótel KEA

     Reykjavík 30. október kl. 13:00 og kl. 16:00 Borgartúni 6, Rúgbrauðsgerðinni

     Reykjanesbæ 31. október kl. 15:00 í Eldey, Grænásbraut 506, 235 Ásbrú

     Selfoss 1. nóvember kl. 14:00 í Tryggvaskála


Reiknað er með að á fundunum verði um klukkutíma kynning og umræður í um klukkutíma.